FÉLAG STJÓRNMÁLAFRÆÐINGA
Icelandic Political Science Association
Á döfinni

Nýkjörin stjórn hefur skipt með sér verkum.

Svavar Halldórsson, formaður


svavar@stjornmal.com

Birna Þórarinsdóttir, ritari

birnathorarins@gmail.com

Þórir B. Hrafnsson, gjaldkeri


torr3000@gmail.com



 

 

Elva Björk Sverrisdóttir, ritstjóri www.stjornmal.com

elvabjorksverrisdottir@gmail.com

Pétur Berg Matthíasson, ritstjórn www.stjornmal.com

peturberg@hotmail.com

Hilmar Kristinsson, ritstjórn www.stjornmal.com

hilmar.kristinsson@gmail.com





Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir, funda- og viðburðastjóri


sigurlauganna@simnet.is


Jónas Haraldsson, varaformaður

africanstudies@gmail.com

Atli Már Sigurðsson, meðstjórnandi

atlimsigurdsson@gmail.com



Aðalfundur fimmtudagskvöld kl 20:00 í Odda 101.

Áríðandi að sem flestir mæti - hópferð á Ölstofuna á eftir.

Óskað er eftir framboðum í öll embætti. Níu eru í stjórninni en formaður er kosinn sérstaklega. Að öðru leyti skiptir stjórnin sjálf með sér verkum. Framboð skulu berast viku fyrir aðalfund en berist ekki framboð í öll embætti er félagsmönnum heimilt að bjóða sig fram á fundinum sjálfum.

Fráfarandistjórn leggur ekki til neinar lagabreytingar en lagabreytingatillögur frá félagsmönnum þurfa að berast viku fyrir aðalfund.

Skuldlausirfélagsmenn hafa atkvæðarétt á aðalfundi. Kjörskrá er aðgengileg hér á vefnum undir yfirskriftinni Félagatal. Hver sá sem uppfyllirskilyrði félagsaðildar að öðru leyti öðlast sjálfkrafa kjörgengi ogkosningarétt ef hann greiðir árgjaldið fram að setningu aðalfundar.


Umsóknarfrestur vegna framhaldsnáms 15. eða 30. október.

Umsóknarfrestur er til 15. október fyrir meistaranám, en 30. nóvember fyrir diplómanám.  

Við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands stunda nú um 400 manns meistara- eða diplómanám á fimm mismunandi námsleiðum (sjá hér að neðan). Inngangsskilyrði á allar línur eru BA, BS eða B.ed próf í einhverri grein.  Allar upplýsingar eru í ítarlegum kynningarbæklingi deildarinnar. Bent er á að nemendur geta auk aðalgreinar tekið valfög á öðrum námslínum deildarinnar og þannig lagað námið að eigin þörfum og áhugasviði:  http://www.hi.is/files/skjol/felagsvisindasvid/deildir/stjornmalafraedi/MA_baeklingur_2010_11.pdf 

Opinber stjórnsýsla, einnig í boði í fjarnámi á einföldu formi: Stjórnmálafræðideild H.Í. er leiðandi í námi og rannsóknum á sviði opinberrar stjórnsýslu. Námið er skipulagt þannig að fólk geti tekið það samhliða starfi og þá á lengri tíma og fjölmargir gera það. Hið opinbera á Íslandi tekur til sín hátt í helming þjóðarframleiðslunnar og mikilvægt að þar sé staðið vel að verki.  Í náminu sitja reyndir stjórnendur hins opinbera á fjölda sviða, bæði ríkis og sveitarfélaga, ásamt fólki sem nýlega hefur lokið háskólanámi og njóta leiðsagnar reyndra kennara og fagmanna. Sú blanda er einn styrkleika námsins, auk þess sem nemendur geta valið um ellefu mismunandi áherslusvið í náminu: 
http://www.hi.is/is/felagsvisindasvid_deildir/stjornmalafraedideild/nam/diploma_og_meistaranam_mpa_i_opinberri_stjornsyslu

Evrópufræði: Sl. haust hófst nýtt meistara- og diplómanám í Evrópufræðum. Með því vill stjórnmálafræðideild leggja sitt af mörkum til uppbyggingar náms og rannsókna á þessu sviði, en Evrópusambandið er lykilsamstarfsaðili Íslands í gegnum EES samninginn og Evrópa er stærsta markaðssvæði Íslands. 
Um námið: http://www.hi.is/felagsvisindasvid_deildir/stjornmalafraedideild/nam/evropufraedi 

Alþjóðasamskipti: Umfang alþjóðasamskipta af margvíslegu tagi og þátttaka Íslands í starfi alþjóðastofnana og -samtaka vex stöðugt og kallar á starfsfólk með þekkingu á því sviði. Námið mætir þörf fyrirtækja, samtaka og hins opinbera að þessu leyti: 
http://www.hi.is/is/felagsvisindasvid_deildir/stjornmalafraedideild/nam/diploma_og_meistaranam_i_althjodasamskiptum 

Diplómanám í smáríkjafræðum: Hægt að hefja að hausti. Stjórnmálafræðideild H.Í. er leiðandi á sviði kennslu og rannsókna á þessu sviði.  Í náminu er m.a. fjallað um þau tækifæri sem smáríki í alþjóðasamfélaginu standa frammi fyrir og þá veikleika sem þau þurfa að styrkja. Sérstök áhersla er á að greina stöðu smáríkja í Evrópusambandinu: 
http://www.hi.is/felagsvisindasvid_deildir/stjornmalafraedideild/nam/small_state_studies_small_states_in_europe 

Kynjafræði- hægt að taka að verulegu leyti í fjarnámi á einföldu formi: Nám í kynjafræði við stjórnmálafræðideild skapar fólki óteljandi starfsmöguleika og fólk með jafnréttis- og kynjafræðimenntun starfar við kennslu- og fræðastörf, fjölmiðla- og upplýsingastörf, verkefna- og starfsmannastjórnun hjá hinu opinbera, hagsmuna- og frjálsum félagasamtökum: 
http://www.hi.is/is/felagsvisindasvid_deildir/stjornmalafraedideild/nam/framhaldsnam_i_kynjafraedi 


Ef þú hefur frekari spurningar eða vilt ræða um þessa möguleika við einhvern þá endilega hafðu samband við einhverja undirritaðra. 

Með okkar bestu kveðjum, 
Margrét S. Björnsdóttir, msb@hi.is, sími 525-4254 
Elva Ellertsdóttir, elva@hi.is, sími  525-4573 
Bryndísi E. Jóhannsdóttur verkefnisstjóra, bej3@hi.is, sími 525-5445.



Aðalfundur 2011.

13. október klukkan 20:00.

Óskað er eftir framboðum í öll embætti. Níu eru í stjórninni en formaður er kosinn sérstaklega. Að öðru leyti skiptir stjórnin sjálf með sér verkum. Framboð skulu berast viku fyrir aðalfund en berist ekki framboð í öll embætti er félagsmönnum heimilt að bjóða sig fram á fundinum sjálfum.

Fráfarandistjórn leggur ekki til neinar lagabreytingar en lagabreytingatillögur frá félagsmönnum þurfa að berast viku fyrir aðalfund.

Skuldlausirfélagsmenn hafa atkvæðarétt á aðalfundi. Kjörskrá er aðgengileg hér á vefnum undir yfirskriftinni Félagatal. Hver sá sem uppfyllirskilyrði félagsaðildar að öðru leyti öðlast sjálfkrafa kjörgengi ogkosningarétt ef hann greiðir árgjaldið fram að setningu aðalfundar.


Á döfinniUm félagiðMyndir úr starfinuSkilaboðaskjóðaTenglarFinndu fræðimann